|
FRÆÐSLUFERÐIR
UM SNÆFELLSNES - jarðfræði, eldfjöll og saga
Eldfjallasafn í Stykkishólmi stendur fyrir fræðsluferðum um Snæfellsnes á mánudögum og þiðjudögum. Þar er Nesið skoðað og fjallað um jarðfræði og eldfjöll undir handleiðslu eins mesta sérfæðings á þessu sviði.
Einnig er rætt um þá auðlegð sem Nesið hefur að geyma í tengslum við Íslendingasögur.
Snæfellsnes býður upp á ótrúlega fjölbreytni í jarðfræði, og má með sönnu segja að Snæfellsnes sé einskonar vasabókarútgáfa af jarðfræði Íslands, auk frábærrar náttúrufegurðar. Farin er hringferð um Snæfellsnes, og er ferðin um átta tímar alls. Stoppað verður á öllum helstu jarðfræðistöðum á Nesinu, og veitir Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur ítarlega leiðsögn. Ferðin er ekki aðeins kynnisferð, heldur skipulögð þannig að hún skilur eftir heilsteypta mynd af jarðfræði og landmótun í lok ferðarinnar hjá hverjum þátttakanda. Höfuðþættir í jarðsögu eru kannaðir, Tertíera blágrýtismyndunin, jökulberg og setmyndanir með skeljalögum frá ísöld, myndun móbergs, og hraun og gjóskuberg frá nútíma. Auk þess fá þátttakendur tækifæri til að skoða djúpberg og innskot af granófyr og gabbró. Þannig er hver ferð, ásamt fyrirlestrum í Eldfjallasafni í Stykkishólmi, einskonar námskeið um jarðfræði Íslands. Merkir staðir í jarðfræði Íslands verða kannaðir í ferðinni, þar á meðal Drápuhlíðarfjall, Kerlingarfjall, Snæfellsjökull, Búlandshöfði, Berserkjahraun og fleiri.
Farið er í stuttar gönguferðir á þessum stöðum.
Snæfellsnes er sögusvið Eyrbyggju og Bárðar sögu Snæfellsáss, og verður vettvangur þeirra kynntur á leiðinni. Fræðsluferðirnar eru farnar á mánudögum og þriðjudögum og hægt að bóka þátttöku í síma 433 8154 eða með því að senda tölvupóst á safn@eldfjallasafn.is
Innifalið: Akstur, nesti,
leiðsögn um jarðfræði og sögu,
heimsókn í Eldfjallasafn í Stykkishólmi.
Nesti: Samloka, ávextir, jógúrt,
heitur drykkur, ávaxatasafi.
Lengd ferðar u.þ.b. 8 klukkutímar.
Verð 20.000 kr. á mann.
|