Aftur á forsíðu
Opnunartímar safnsins
Kort af Stykkishólmi
Leiðsögn um safnið
Senda póst á Eldfjallasafnið
English version
Fræðsluferðir um SnæfellsnesUppruni og efniviðurFramtíð EldfjallasafnsVettvangur EldfjallasafnsJarðfræði Snæfellsness

Framtíð Eldfjallasafns í Stykkishólmi

Með kynningarsýningunni sem opnuð var árið 2009 var tekið fyrsta skrefið til stofnunar Eldfjallasafns í Stykkishólmi. Þörf fyrir slíka stofnun á Íslandi er augljós. Land okkar er algjörlega byggt upp af eldgosum og saga okkar er samtvinnuð eldvirkni, bæði hamförum sem hafa orðið að völdum eldgosa, eins og Skaftáreldum árið 1783, og jákvæðum áhrifum eldfjallanna, eins og jarðhita. Eldfjallasafn mætir einnig brýnni þörf í ferðaþjónustu, bæði fyrir Íslendinga og erlenda ferðamenn. Kjarni Eldfjallasafns í Stykkishólmi er traustur, og byggist hann á einstæðu safni Haraldar Sigurðssonar eldfjallafræðings, en nokkur hluti þess er sýndur hér. Auk þess verður Eldfjallasafn vettvangur fyrir þverfaglegar rannsóknir á öllum þáttum menningar, lista og vísinda sem snerta eldgos og áhrif þeirra. Á þann hátt verður stofnunin einstök á heimsmælikvarða. Á kynningarsýningunni er aðeins sýndur hluti af safni því sem Haraldur hefur viðað að sér. Aðal áherzla er lögð á tengsl vísindanna og listar í þessari sýningu. Annar efniviður í fórum Eldfjallasafns er bókasafn nokkur þúsunda binda af verkum sem fjalla um eldfjöll og jarðfræði, nokkur þúsund greinar úr vísindaritum, kort og önnur skjöl, auk muna og steinasafns.
Framtíðarsýnin um Eldfjallasafn er stofnun í Stykkishólmi sem er fyrst og fremst hugsuð sem vettvangur til að fræða almenning um uppruna, eðli og áhrif eldgosa. Vegna sérstöðu efnis þess sem þegar liggur fyrir, þá verða þverfagleg atriði fyrst í öndvegi eins og áhrif eldfjalla á listir og bókmenntir. Einnig munum við stefna á virka þátttöku Eldfjallasafns í vísindarannsóknum og aðferðum til að beita tækni til eldfjallarannsókna, í samstarfi við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands og aðrar stofnanir.
Gamla samkomuhúsið þjónar vel þeim tilgangi að hýsa kynningarsýninguna og til fundarhalda, en er of lítið fyrir Eldfjallasafn framtíðar. Stykkishólmsbær hefur þegar afmarkað 2200 fermetra lóð við hliðina á þessu húsi, sem er tilvalin til byggingar Eldfjallasafns framtíðarinnar (sjá mynd af skipulagi). Þegar bygging rís þar, þá mun hún tengd þessu húsi. Steinagarður verður umhverfis Eldfjallasafn, þar sem safnað verður stórum sýnum af öllum helstu bergtegundum Íslands.

 

Eldfjallasafn - Aðalgata 6 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8154 - safn@eldfjallasafn.is