Aftur á forsíðu
Opnunartímar safnsins
Kort af Stykkishólmi
Leiðsögn um safnið
Senda póst á Eldfjallasafnið
English version
Fræðsluferðir um Snæfellsnes

Safnið opnar á ný 1. maí 2012.

Upplýsingar eru veittar í
síma 433-8154 og í
tölvupósti: safn@eldfjallasafn.is

Á sýningunni er alþjóðasafn af listaverkum, fornum og nýjum, sem sýna eldgos, og einnig munir, forngripir, minjar og steintegundir úr einstöku safni Haraldar Sigurðssonar prófessors, sem hefur stundað eldfjallarannsóknir í yfir fjörutíu ár um allan heim.

Sérstök sýning hefur verið sett upp í safninu varðandi gosin í Eyjafjallajökli árið 2010. Þar á meðal eru stórbrotin listaverk eftir Ragnar Axelsson ljósmyndara af gosunum á Fimmvörðuhálsi og í Eyjafjallajökli. Einnig ljósmyndir eftir Jóhann Ísberg og vatnslitamynd af sprengigosinu í Eyjafjallajökli eftir Vignir Jóhannsson.

Kynningarsýningin er undirbúningur að stofnun Eldfjallasafns í Stykkishólmi í náinni framtíð, þar sem margir þættir eldfjalla og virkni þeirra verða skoðuð í ljósi lista, vísindanna, bókmennta og umhverfisáhrifa.

Á Eldfjallasafninu s.l. sumar var kynning flutt daglega af Haraldi Sigurðssyni á íslensku og ensku, um eldgos og áhrif þeirra, ásamt fræðslu um jarðfræði sem hentar fólki og nemendum með litla eða enga þekkingu á þessu sviði.

Orkusalan Menningarráð Vesturlands

Eldfjallasafn - Aðalgata 8 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8154 - safn@eldfjallasafn.is